Dagur hvíta stafsins er alþjóðlegur baráttu- og vitundardagur blinds og sjónskerts fólks sem haldinn er 15. október ár hvert. Á þeim degi vekja blindir og sjónskertir einstaklingar athygli á hagsmunamálum sínum og hvar þörf er á úrbótum svo þeir geti tekið virkan þátt í samfélaginu.

Í tilefni af degi hvíta stafsins munu Miðstöðin og Blindrafélagið senda frá sér  fræðslumola á Facebook– og Instagram síðum Miðstöðvarinnar.