Líkt og undanfarin misseri stendur blindum og sjónskertum til boða regluleg hópþjálfun undir handleiðslu sjúkraþjálfara. Þjálfunin fer fram hjá Afli sjúkraþjálfun og er í samstarfi við Þjónustu- og þekkingamiðstöð.

Þjálfunin er ætluð sjónskertum og blindum einstaklingum sem vilja bæta líkamlegan styrk og auka úthald.

Hver þátttakandi fylgir prógrammi sem sniðið er að hans/hennar þörfum og miðast þjálfunin að því að bæta:

  • grunnþol
  • styrk
  • liðleika
  • jafnvægi
  • líkamsstöðu og líkamsbeitingu
  • spennulosun

 Sé fólk að koma í fyrsta sinn kemur það í skoðunar- og viðtalstíma áður en þjálfun hefst. Þeir sem hafa verið áður geta hafið þjálfun án viðtalstíma.

Tímasetning:

Hópur 1: 13. janúar – 15.maí, þriðjudagar og föstudagar kl. 8:00 – 9:00.

Hópur 2: 20. janúar – 15. maí, þriðjudagar og föstudagar kl. 9:00 – 10:00.

Sjúkraþjálfari er Ásdís Árnadóttir.

Námskeiðið fer fram hjá Afli sjúkraþjálfun, Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðin).

Hámarksfjöldi í hvorn hóp er 5.

Lágmarksaldur er 18 ára.

Námskeiðsgjald: Sjúkratryggingar Íslands greiða hluta af gjaldi hvers þátttakanda, restina greiða þátttakendur sjálfir. Upplýsingar um greiðslu einstaklinga má fá í gegnum tölvupóst afl@aflid.is  eða í síma 511-4111.

Skráning fer fram hjá Afli sjúkraþjálfun í síma 511-4111 eða afl@aflid.is.