Námskeið hjá Afli sjúkraþjálfun 

Líkt og undanfarin misseri stendur blindum og sjónskertum til boða
regluleg hópþjálfun undir handleiðslu sjúkraþjálfara. Þjálfunin fer fram
á Afli sjúkraþjálfun, Borgartúni 6.

Þjálfunin er ætluð sjónskertum og blindum einstaklingum sem vilja bæta líkamlegan styrk og auka úthald. 

Hver þátttakandi fylgir prógrammi sem sniðið er að hans/hennar þörfum og miðast þjálfunin að því að bæta:

•    grunnþol
•    styrk
•    liðleika
•    jafnvægi
•    líkamsstöðu og líkamsbeitingu
•    spennulosun

 

Ef fólk er að koma í fyrsta sinn kemur það í skoðunar- og viðtalstíma
áður en þjálfun hefst. Þeir sem hafa verið áður geta hafið þjálfun án
viðtalstíma.

Tímasetning:
Hópur 1: 8. febrúar – 27.maí, þriðjudagar og föstudagar kl. 8:00 – 9:00.
Hópur 2: 8. febrúar – 27. maí, þriðjudagar og föstudagar kl. 9:00 – 10:00.

Sjúkraþjálfari: Ásdís Árnadóttir

Staðsetning: Afl sjúkraþjálfun, Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðin)
Hámarksfjöldi í hvorn hóp er 5.
Lágmarksaldur: 18 ára
Námskeiðsgjald: Sjúkratryggingar Íslands greiða hluta af gjaldi hvers
þátttakenda, restina greiða þátttakendur sjálfir. Upplýsingar um
greiðslu einstaklinga má fá í gegnum tölvupóst afl@aflid.is eða í síma 511 4111 en þar fer einnig skráning fram.