Úthlutun á leiðsöguhundi

Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga mun úthluta leiðsöguhundi á árinu. Leiðsöguhundar aðstoða blinda og sjónskerta einstaklinga við að komast leiðar sinnar á öruggan og sjálfstæðan hátt og er leiðsöguhundur skilgreindur sem hjálpartæki.

Finna má nánari upplýsingar um umsóknarferli og umsóknareyðublöð á heimasíðu Miðstöðvarinnar www.midstod.is og á skrifstofu Miðstöðvarinnar í Hamrahlíð 17.

Umsókn um leiðsöguhund skal berast til Miðstöðvarinnar fyrir 26. febrúar 2016.

Umsóknir skulu merktar Miðstöðinni, Hamrahlíð 17, 105 Reykjavík eða sendar með tölvupósti á bryndis@midstod.is

Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, hefur verið styrktaraðili leiðsöguhundaverkefnisins frá upphafi.

 

Tengill á upplýsingar um umsóknarferli vegna leiðsöguhunda á heimasíðu Miðstöðvar.

Tengill á síðu með umsóknareyðublöðum vegna úthlutunar á leiðsöguhundum á heimasíðu Miðstöðvar.