Hjálpartæki
Velkomin á hjálpartækjasíðu Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga. Hér má finna yfirlit yfir hjálpartæki sem Miðstöðin úthlutar til notenda sinna og nálgast upplýsingar um þau.
Hjálpartæki sem Miðstöðin úthlutar eru:
04 Hjálpartæki til meðferðar og þjálfunar.
04 24 Búnaður til mælinga.
04 24 09 Talandi blóðþrýstingsmælir.
Úthlutað til notenda sem vegna sjúkdóms verða að mæla blóðþrýsting reglulega og geta ekki nýtt sér hefðbundna mæla. Blóðþrýstingsmæli er að jafnaði úthlutað á fimm ára fresti.
04 24 90 Talandi blóðsykursmælir.
Úthlutað til notenda sem vegna sjúkdóms verða að mæla blóðsykur reglulega og geta ekki nýtt sér hefðbundna mæla. Blóðsykursmæli er að jafnaði úthlutað á fimm ára fresti.
04 36 Gögn til þjálfunar og örvunar skynfæra.
04 36 03 Gögn til að þjálfa skynjun til sundurgreiningar og flokkunar.
Úthlutað til barna sem þurfa á sértækri örvun og þjálfun skynfæra að halda. Úthlutun fer fram að undangengnu mati.
04 36 06 Sérhæfð leikföng og gögn.
Úthlutað til barna til að örva getu til sundurgreiningar og flokkunar og til að þjálfa samhæfingu skynfæra og samhæfingar augna og handa. Úthlutun fer fram að undangengnu mati.
04 39 Gögn til sjónörvunar.
04 39 01 Sérhæfð leikföng og gögn sem hafa ljós- og/eða hljóðgjafa og sterka liti.
Úthlutað til barna sem þurfa á sérstakri sjónörvun og þjálfun að halda. Úthlutun fer fram einu sinni að undangengnu mati.
05 Búnaður og gögn til þjálfunar og kennslu.
Úthlutað til notkunar við kennslu barna sem ekki geta nýtt sér hefðbundin kennslutæki. Úthlutun fer fram að undangengnu mati.
05 06 Sérhæfð hjálpartæki til kennslu og þjálfunar óhefðbundinna samskiptaleiða.
05 06 15 Sérhæfð gögn til kennslu punktaleturs.
Gögn með upphleyptum punktum til að þjálfa notendur í lestri punktaleturs.
05 06 18 Sérhæfð kennslugögn til þjálfunar snertiskyns.
Gögn til örvunar snertiskyns sem er forsenda lesturs punktaleturs.
05 15 Sérhæfð gögn til kennslu og þjálfunar á grunnfærni.
05 15 18 Sérhæfð kennslugögn til þjálfunar og notkunar á hugtökum.
Úthlutað til notkunar við kennslu barna sem ekki geta nýtt sér hefðbundin námsgögn, til dæmis tommustokk, málband og mæliglas með upphleyptum táknum og talandi vog.
Nr. 233 12. mars 2010
05 18 Sérhæfð gögn til kennslu í námsgreinum.
05 18 15 Náttúru- og landafræðigögn.
Upphleypt kort og hnettir.
05 27 Gögn til þjálfunar í félagsfærni.
Úthlutað til barna sem þarfnast þjálfunar í félagsfærni. Úthlutun fer fram að undangenginni þjálfun og kennslu.
05 27 03 Spil.
Aðstoða við þjálfun í félagsfærni.
06 Stoðtæki.
06 30 Gerviauga.
06 30 21 Gerviauga.
Úthlutað er eftir þörfum notenda.
06 30 21 Augnskel.
Úthlutað er eftir þörfum notenda.
12 Ferlihjálpartæki.
12 07 Fylgihlutir við gönguhjálpartæki.
12 07 06 Endar á stafi.
Úthlutað eftir þörfum notenda.
12 07 09 Ísbroddar á stafi.
Úthlutað eftir þörfum notenda.
12 39 Hjálpartæki fyrir rötun og umferli.
Hjálpartæki við rötun og til að þekkja og skilgreina umhverfi. Fyrstu úthlutun stafs er ætíð fylgt eftir með kennslu og þjálfun í notkun. Stafir fyrir fullorðna eru ávallt hvítir en börn geta fengið stafi í ýmsum litum.
12 39 03 Stafir.
Úthlutað eftir þörfum notenda. Um eftirtaldar tegundir er að ræða:
a.
Samanbrjótanlegir stafir.
b.
Heilir stafir.
c.
Útdraganlegir stafir.
d.
Sérgerðir barnastafir.
e.
Stafagöngusett.
f.
Göngustafir.
g.
Merkistafir.
12 39 90 Leiðsöguhundar.
Aðstoða við rötun og umferli, er úthlutað til einstaklinga sem taldir eru, að undangengnu mati, geta nýtt sér hunda til aukins sjálfstæðis við umferli. Úthlutun er fylgt eftir með þjálfun hjá sérþjálfuðum hundaþjálfurum og umferliskennurum. Úthlutun fylgir mat á aðstæðum einstaklinga og mat á pörun einstaklings og leiðsöguhunds.
Nr. 233 12. mars 2010
Úthlutun og endurúthlutun er tekin fyrir hverju sinni á Miðstöðinni. Fjöldi hunda sem er úthlutað á hverju ári er ákveðinn af Miðstöðinni fyrir eitt ár í senn. Þeir sem sækja um leiðsöguhund verða að vera eldri en 19 ára á því ári sem úthlutun fer fram.
22 Hjálpartæki til tjáskipta, upplýsinga og viðvörunar.
22 03 Sjónhjálpartæki.
22 03 03 Ljóssíur.
Ljóssíugleraugum eða ljóssíuglerjum er úthlutað til notenda þar sem ljósfælni veldur röskun á daglegu lífi. Prófanir þurfa að sýna að ljóssía bæti sjóngetu eða líðan notenda. Endurúthlutun er heimil á þriggja ára fresti. Endurúthlutun er einnig heimil þegar breytingar verða á sjón.
22 03 06 Göngugleraugu.
Úthlutað til barna óháð styrk. Endurúthlutun er heimil til barna 0–3 ára allt að tvisvar sinnum á ári, 4–8 ára einu sinni á ári og 9–18 ára annað hvert ár. Að auki er endurúthlutun heimil ef um breytingu á sjón er að ræða.
Úthlutað til fullorðinna þegar ljósbrotsgalli er meiri en +/- 10,00.D. Jafnframt er heimilt að úthluta göngugleraugum vegna gerviaugna þegar útlitsaðlögunar er þörf. Endurúthlutun er heimil á þriggja ára fresti eða þegar breytingar verða á sjón.
22 03 06 Tvískipt/margskipt gleraugu.
Heimilt að úthluta í þeim tilvikum þegar aðstæður krefjast þess í sambandi við vinnu og skóla eða vegna líkamlegs atgervis. Endurúthlutun er heimil á þriggja ára fresti eða ef um breytingar á sjónlagi er að ræða sem nema ≥ ±0,75.D.
22 03 06 Snertilinsur.
Heimilt að úthluta til fullorðinna þegar ljósbrotsgalli er meiri en nemur +/- 10,00.D.
Heimilt að úthluta til þeirra notenda sem ekki eru með augasteina og notenda með lausa augasteina, keiluglæru eða skylda sjúkdóma í glæru.
Jafnframt er heimilt að úthluta ljóssíusnertilinsum eða ljóssíugleraugum til þeirra notenda sem upplifa verulega mikla ljósfælni sem raskar daglegu lífi. Lituðum snertilinsum er heimilt að úthluta til notenda með skert ljósop. Úthlutun snertilinsa fer að jafnaði fram einu sinni á ári.
22 03 09 Lesgler, stækkunargler og glerjakerfi til stækkunar.
Glerjum er úthlutað til notenda sem þurfa stækkun til að geta sinnt athöfnum daglegs lífs.
22 03 09 Stækkunargler með ljósi.
Heimilt er að úthluta allt að þremur stækkunarglerjum á ári. Auk þess er endurúthlutun heimil ef breytingar verða á sjón.
22 03 09 Stækkunargler án ljóss.
Heimilt er að úthluta allt að þremur stækkunarglerjum á ári. Auk þess er endurúthlutun heimil ef breytingar verða á sjón.
22 03 09 Lesgleraugu.
Úthlutað til þeirra sem ekki geta lesið venjulegt bóka- og blaðaletur (10 punkta skrift í 25 sm fjarlægð) með hefðbundnum lesgleraugum. Endurúthlutun er heimil á þriggja ára fresti eða ef breytingar verða á sjón.
22 03 09 Kíkisgleraugu og ennislúpur.
Úthlutað til þeirra sem ekki ná fullnægjandi lestri með lesgleraugum. Úthlutun fer fram eftir þörfum notenda og mati sjóntækjafræðings.
Nr. 233 12. mars 2010
22 03 12 Sjónaukar.
Úthlutað til notenda sem sjá illa frá sér og þurfa að geta greint hluti í fjarlægð. Úthlutun er ætíð fylgt eftir með þjálfun. Endurúthlutun er heimil á fimm ára fresti eða ef breytingar verða á sjón. Einum sjónauka er úthlutað hverju sinni.
22 03 18 Stækkunarbúnaður tengdur skjá og tölvu.
Búnaður til að stækka texta og mynd með hjálp myndavélar. Endurúthlutun er heimil á fimm ára fresti. Uppfærslur á hugbúnaði sem fylgir tölvutengdum tækjum eru heimilar árlega.
22 03 18 Skjálúpa og stækkunarmús, tengd skjá eða tölvu.
Heimilt að úthluta til notenda sem eiga í erfiðleikum með að lesa með gleraugum og/eða stækkunar-glerjum. Miðað er við að viðkomandi þurfi meira en þrefalda stækkun til að geta lesið 10 punkta letur eða geti ekki haldið á stækkunargleri vegna líkamlegs atgervis.
22 03 18 Stækkunartæki – staðbundin og færanleg.
Tækinu er heimilt að úthluta til:
a.
fullorðinna sem sjá minna en 6/60 og/eða geta ekki lesið 32 punkta letur með bestu fáan-legum lesgleraugum og
b.
sjónskertra barna sem sjá minna en 6/48 og/eða þurfa á slíkri stækkun að halda til að geta stundað nám til jafns við jafnaldra sína, þjálfað samhæfingu handa og augna, sinnt heima-vinnu og notið bókalesturs.
22 03 18 Vasastækkunartæki.
Tækinu er heimilt að úthluta til notenda sem:
a.
sjá minna en 6/60 eða geta ekki lesið 32 punkta letur með bestu fáanlegum lesgleraugum og
b.
ekki geta nýtt sér sterk stækkunargler til athafna daglegs lífs.
22 03 90 Aukahlutir með stækkunarbúnaði.
Úthlutað með hverju tæki í upphafi. Aukahlutir eru plexíplata, pakki af línublöðum og svunta.
22 03 91 Hreyfanlegur og/eða stillanlegur armur fyrir skjá.
Skjáarmur sem festur er við vegg eða borð. Gerir notanda kleift að draga skjáinn til sín og stýra jafnframt hversu hátt eða lágt hann er staðsettur. Endurúthlutun er heimil á fimm ára fresti.
22 12 Hjálpartæki til að skrifa og teikna.
22 12 12 Sérhæfð kennslugögn til að skrifa punktaletur á límborða.
Rétt til úthlutunar eiga þeir sem lesa og skrifa punktaletur. Endurúthlutun er heimil eftir fimm ár.
22 12 15 Ritvélar.
Sérstaklega ætlaðar þeim sem lesa og skrifa punktaletur. Rétt til úthlutunar eiga þeir sem geta ekki skrifað með hefðbundnum hætti, hafa náð tökum á og nota punktaletur eða eru í punktaletursnámi. Rammi fyrir borða fylgir með ritvélinni. Endurúthlutun er heimil eftir fimm ár.
Að öllu jöfnu er hefðbundnum punktaletursritvélum úthlutað en hægt er að sækja um rafmagnsritvél að undangengnu mati.
22 12 18 Punktaleturspappír.
Úthlutað til barna og námsmanna eftir þörfum.
22 12 18 Sérhæfð gögn til að þjálfa skrift og teikningu.
Rétt til úthlutunar eiga börn sem geta ekki nýtt sér hefðbundin gögn til að skrifa og teikna. Um er að ræða teiknimottur, plöst til teikninga, teiknisett og skriframma. Úthlutun fer eftir þörfum.
Nr. 233 12. mars 2010
22 12 21 „Notetaker“.
Braille-lófatölva, öðru nafni „notetaker“, sem hefur innbyggðan punktaletursskjá og tengingu við punkta- og svartletursprentara.
Miðstöðin áskilur sér rétt til að ákveða tegund tækis sem úthlutað er og tekur mið af því hversu vel tækið hentar íslenskum aðstæðum, hvort unnt sé að íslenska tækið og hvort unnt sé að hlaða reglum fyrir íslenskt punktaletur inn á tækið. Tækið er sérstaklega hugsað fyrir börn á aldrinum 4–12 ára og er úthlutað á fimm ára fresti. Sé „notetaker“-lófatölvu úthlutað fær notandi ekki úthlutað blindra-letursskjá á sama tímabili.
22 12 90 Lestrarbretti fyrir punktaletursritvél.
Bretti fest á ritvél til að halda pappír stöðugum. Einu bretti er úthlutað með ritvél.
22 15 Hjálpartæki til útreikninga.
22 15 03 Sérhæfð hjálpartæki til útreikninga önnur en rafstýrð.
Rétt til úthlutunar eiga þeir sem ekki geta reiknað með hefðbundnum hætti. Endurúthlutun er heimil á fimm ára fresti. Um er að ræða:
a.
Abakus – hefðbundin.
b.
Abakus – einfaldur fimm raða.
c.
Abakus – talnastokkur (23 sm).
22 15 03 Sérhæfð hjálpartæki til útreikninga.
Talandi reiknivél er úthlutað til barna og námsmanna. Endurúthlutun er heimil á fimm ára fresti.
22 18 Hjálpartæki er varða upplýsingar í formi hljóðs eða mynda.
22 18 03 Hljóðupptöku- og afspilunartæki.
Rétt til úthlutunar eiga:
a.
börn sem vegna skólagöngu nota bækur á DAISY-formi,
b.
notendur sem ekki eru færir um að lesa bækur með 10 punkta letri sér til ánægju með meira en þrefaldri stækkun og
c.
notendur sem geta ekki haldið á bók.
Endurúthlutun er heimil eftir fimm ár.
22 27 Hjálpartæki til viðvörunar og upplýsinga.
22 27 06 Talandi litaskynjarar.
Úthlutað til þeirra sem vegna sjónskerðingar geta ekki greint liti. Endurúthlutun er heimil á fimm ára fresti.
22 30 Hjálpartæki til lesturs.
22 30 06 Námsbækur á stækkuðu letri fyrir grunnskóla-, framhaldsskóla- og háskólanemendur.
Bækur á svartletri eða rafrænu formi eru yfirfærðar á stækkað letur og prentaðar út og/eða sendar rafrænt til notenda.
22 30 06 Afþreyingarefni á stækkuðu letri.
Notendur koma með efni til Miðstöðvarinnar, annaðhvort á svartletri eða á rafrænu formi. Efnið er yfirfært á stækkað letur og prentað út og/eða sent rafrænt til notenda.
22 30 15 Stillanleg hallandi vinnuplata.
Ætluð sjónskertum sem þurfa að stilla vinnufjarlægð við lestur, skrift, teikningu og önnur verkefni. Endurúthlutun er heimil á fimm ára fresti.
Nr. 233 12. mars 2010
22 30 15 Lesgrindur.
Hallandi lesgrindur til stuðnings við lestur. Endurúthlutun er heimil á fimm ára fresti.
22 30 21 Hugbúnaður til skönnunar svartletursefnis.
Hugbúnaður til að skanna svartleturstexta, breyta í textaskjöl og lesa með skjálestrarhugbúnaði. Endurúthlutun er heimil á þriggja ára fresti. Uppfærsla er heimil árlega að undangengnu mati.
22 30 24 Námsbækur á punktaletri fyrir grunnskóla-, framhaldsskóla- og háskólanemendur.
Bækur á svartletri eða rafrænu formi eru yfirfærðar á punktaletur og prentaðar út og/eða sendar rafrænt til notenda.
22 30 24 Afþreyingarefni á punktaletri.
Bækur á svartletri eða rafrænu formi eru yfirfærðar á punktaletur og prentaðar út og/eða sendar rafrænt til notenda.
22 36 Inntaksbúnaður fyrir tölvur.
22 36 03 Límmiðar á lyklaborð.
Límmiðar með stækkuðu letri til að setja á lyklaborð. Úthlutað til þeirra sem ekki sjá letrið á hefð-bundnum lyklaborðum. Úthlutun er heimil einu sinni á ári.
22 39 Úttaksbúnaður fyrir tölvur.
22 39 03 Punktaletursskjár.
Rétt til úthlutunar eiga þeir sem lesa og nota punktaletur. Úthlutun er heimil á fimm ára fresti.
22 39 06 Punktaletursprentari.
Rétt til úthlutunar eiga þeir sem lesa og nota punktaletur. Úthlutun er heimil á fimm ára fresti.
22 39 09 Talgervill.
Rétt til úthlutunar eiga þeir sem eiga og nota tölvur en geta ekki nýtt sér hefðbundinn tölvuskjá. Endurúthlutun er heimil á þriggja ára fresti. Uppfærsla er heimil árlega að undangengnu mati.
22 39 09 Talbúnaður í farsíma.
Rétt til úthlutunar eiga þeir sem ekki geta lesið á hefðbundinn farsímaskjá. Notandi kaupir sjálfur símtæki. Endurúthlutun er heimil á þriggja ára fresti. Uppfærsla er heimil árlega að undangengnu mati.
22 39 12 Hugbúnaður til að stækka texta og myndir á skjá.
Hugbúnaður til að stækka texta og myndir á tölvuskjá og farsímaskjá. Rétt til úthlutunar hafa þeir sem eiga og nota tölvur og farsíma en geta ekki nýtt sér hefðbundinn skjá. Úthlutun fer fram eftir að sýnt hefur verið fram á að innbyggðir stækkunarmöguleikar stýrikerfis búnaðar duga ekki til almennrar notkunar.
Endurúthlutun er heimil á þriggja ára fresti. Uppfærsla er heimil árlega að undangengnu mati.
Reglugerð um úthlutun hjálpartækja (pdf) 239 kb