Fyrsta endurhæfingaríbúðin fyrir blinda og sjónskerta vígð.

Þriðjudaginn 2. nóvember síðastliðinn var fyrsta hæfingar og endurhæfingaríbúð sem ætluð er blindum og sjónskertum einstaklingum á Íslandi vígð. Íbúðin er í húsi Blindrafélagsins að Hamrahlíð 17 í Reykjavík. Vígslan fór fram með afhendingu lykla til Guðfinns Vilhelms Karlssonar en hann er fyrsti íbúinn. Hann fékk lyklana afhenta frá Láru Björnsdóttur, sviðsstjóra í Félags- og tryggingamálaráðuneytinu.
Hæfing og endurhæfing blindra og sjónskertra einstaklinga til að gera þeim kleift að lifa sjálfstæðu lífi og halda eigið heimili er mjög þarft verkefni. Þetta á ekki síst við í þeim tilfellum að gefa ungu fólki tækifæri á að spreyta sig í að flytja að heiman og búa eitt.
Blindrafélagið sér um íbúðina og kostnað vegna hennar en Miðstöðin sér um endurhæfingu og ráðgjöf.  Meginmarkmið með búsetuendurhæfingu er að einstaklingar öðlist færni við að halda heimili og fái til þess einstaklingsmiðaða þjálfun og kennslu.
Tæplega 1500 Íslendingar eru blindir og sjónskertir og af þeim eru tæplega 300 manns á vinnualdri og mun íbúðin reynast sérstaklega vel þeim sem eru að taka sín fyrstu spor í átt að sjálfstæðri búsetu, námi og atvinnu.