Málverk eftir Rut Rebekku

Þjónustu- og þekkingarmiðstöð

fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.

Ráðstefnan og vinnustofan Sjáðu, finndu, nýttu! (See it, Find it, Use it) til að styðja við sjón hjá nemendum með viðbótarfatlanir verður haldin í húsi Blindrafélagsins á 2. hæð dagana 27. – 28. október 2023. Nánar hér. 

Auglýst er eftir umsóknum um styrk úr Minningarsjóðnum „Gefum blindum augum sjón“ á árinu 2023. Markmið sjóðsins er að stuðla að framþróun og nýjungum í augnlækningum með styrkveitingum til lækna og vísindamanna sem leita sér formlegs framhaldsnáms í augnlækningum erlendis eða leggja stund á vísindarannsóknir á því sviði. Nánari upplýsingar hér.  Umsóknarfrestur framlengdur til 15. október 2023.

Algeng atriði

Endurgreiðslur gleraugna

Til að sækja um endurgreiðslu vegna gleraugna þarf að fylla út eyðublað á vefnum. Fylgja þarf afrit af augnvottorði og sundurliðaða kvittun frá gleraugnaverslun.

Bæklingar

Hér má finna allskyns lesefni tengt sjónskerðingu og daglegt líf þeirra sem glíma við hana. Flesta þeirra má lesa beint af vefnum eða hlaða niður sem .pdf-skjali.

Þjónusta

Markmið Sjónstöðvarinnar er að auka möguleika þeirra sem eru blindir eða sjónskertir til virkni og þátttöku á öllum sviðum samfélagsins til jafns við aðra.

Samþætt sjón- og heyrnarskerðing

Áður kölluð daufblinda, er sértæk fötlun þegar skerðingin er til staðar í þeim mæli að hún gerir skertu skynfærunum erfitt fyrir að bæta upp fyrir hvort annað.

Umferli

Umferli snýst um að læra aðferðir og leiðir til að komast frá einum stað til annars innan dyra sem utan. Umferliskennsla nýtist þeim eru með litla eða enga sjón eða þeim sem eru með sjónúrvinnsluerfiðleika.

Heilatengd sjónskerðing - CVI

CVI er sjónskerðing sem orsakast af skemmdum á sjónbraut og/eða sjónúrvinnslustöðvum í heilanum. Í flestum tilvikum gera börn með CVI sér ekki grein fyrir að sjónupplifun þeirra geti verið frábrugðin sjónupplifun annarra þar sem þau þekkja ekki annað. 

nýjustu fréttir

Efst í einkunnagjöf

Efst í einkunnagjöf

Það er okkur hjá Sjónstöðinni mikil ánægja að greina frá niðurstöðum könnunar á þjónustu ríkisstofnana, því þar trónir Sjónstöðin efst í...

Lokað föstudaginn 26. maí

Lokað föstudaginn 26. maí

Sjónstöðin verður lokuð föstudaginn 26. maí vegna starfsdags. Hægt er að senda tölvupóst á netfangið midstod@midstod.is og verður skilaboðum svarað...

áhugavert efni

„Ætti ég að fá mér leiðsöguhund, eða ekki?“

Ertu að velta fyrir þér að sækja um leiðsöguhund? Ertu forvitin/nn að vita hvað hundurinn getur gert fyrir þig? Carmen hefur notað leiðsöguhund í 8 ár og fer yfir hvað hafa ber í huga til að hundur geti nýst sem best. Áður en Carmen fékk leiðsöguhund þekkti hún ekkert...

Er öðruvísi að umgangast blinda?

Að vera blindur felur óhjákvæmilega í sér ákveðnar hamlanir þegar kemur að samskiptum sem flestir eiga í án orða og nota því sjónina. Blindir eða verulega sjónskertir einstaklingar missa t.d. af látbragði, bendingum, svipbrigðum og öðrum hlutum sem flestum finnst...

Er glasið þitt fullt?

Að hella í glas eða annars konar ílát getur verið mikil áskorun fyrir blinda og sjónskerta, sérstaklega þá sem hafa notast við sjónina í daglegu lífi framan af lífsleiðinni. Slíkt getur krafist æfingar en hér á eftir fylgja nokkur atriði sem hægt er að nýta sér á...

Punktaletur og tæknibúnaður

Punktaletur, einnig kallað blindraletur, er upphleypt letur byggt á sex punkta einingum (sellum (e. cells)). Hægt er að raða punktunum upp á 63 mismunandi vegu og mynda þannig 63 mismunandi tákn. Með því er hægt að mynda alla stafi stafrófsins, tölustafi, greinarmerki...

Handbókin „Út á vinnumarkaðinn“

Miðstöðin hefur þýtt og gefið út handbókina Út á vinnumarkaðinn, sem upprunalega var unnin af Evrópsku blindrasamtökunum (European Blind Union). Í henni er að finna upplýsingar og hagnýt ráð sem geta gagnast sjónskertu fólki í atvinnuleit. Með þessari handbók geta...

viðburðir

algengar spurningar

Ég sótti um endurgreiðslu á gleraugum en get ekki séð að greiðslan hafi borist

Allar gleraugnaendurgreiðslur koma frá Fjársýslu ríkisins og eru merktar „Ríkissjóður.“

Nánar um gleraugnaendurgreiðslur

Get ég sótt um hjálpartæki fyrir mig eða ættingja?

Einungis notendur Miðstöðvarinnar geta fengið úthlutað hjálpartækjum. Ekki er hægt að kaupa hjálpartæki hjá Miðstöðinni.

Reglugerð um úthlutun hjálpartækja á vegum Miðstöðvarinnar 

Geta fullorðnir fengið endurgreiðslu vegna gleraugnakaupa?

Fullorðnir eiga frá 18 ára aldri rétt á endurgreiðslum vegna eftirfarandi:

  • Eru augasteinalausir (aphaki)
  • Þurfa á prismagleraugum að halda vegna tvísýni
  • Eru hánærsýnir (myopia gravis) ≥12,00
  • Eru háfjarsýnir (microphathalmia) ≥10,00
  • Eru með lausa augasteina (luxatio lentis)
  • Þurfa að breyta gleraugnastyrk umtalsvert, að mati sérgreinalæknis í augnlækningum, vegna augnsjúkdóma eða skurðaðgerða, svo sem keiluglæru (keratoconus), eftir hornhimnuígræðslu eða nethimnulossaðgerð.

Nánar um gleraugnaendurgreiðslur

Hvað á að gera við hjálpartæki ef þau eru ekki lengur í notkun?

Miðstöðin lánar öll hjálpartæki og óskar því eftir að þeim sé skilað ef þau nýtast ekki lengur.

um stofnunina

Markmið Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu er að auka möguleika þeirra sem eru blindir, sjónskertir eða með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu til virkni og þátttöku á öllum sviðum samfélagsins til jafns við aðra, með áherslu á stuðning til náms, sjálfstæðs heimilishalds, virkra tómstunda og atvinnuþátttöku.