Stundum er hægt að finna leiðir til að gera matreiðslu auðveldari. Hér eru nokkur einföld ráð til hagræðingar við að skera, hella, baka, steikja og mæla.
Að skera:
- Gúrku er gott að skera með ostahníf.
- Þegar ávextir og grænmeti er afhýtt er hægt að nota „skrælara“ og gott er að hafa eldhúsblað undir svo auðvelt sé að koma afskorningunum í ruslið.
- Þegar skorið er með hnífi er best að beygja fingurna þannig að hnúarnir nemi við hnífsblaðið. Þá verða fingurnir síður fyrir hnífnum.
- Best er að skera tómata með lítilli sög; skera tómatinn fyrst í tvennt og láta skurðinn snúa niður þegar skorið er í sneiðar.
- Stórir beittir hnífar eru oft betri en litlir hnífar.
Að hella:
- Látið stút könnunnar nema við glas- eða bollaröndina á meðan hellt er. Færið ílátið upp eftir könnunni þar til þið finnið stútinn, haldið ílátinu þar og hallið könnunni.
- Til eru skynjarar sem segja til um hvenær bollinn eða glasið er hæfilega fullt.
- Þegar blanda skal saman heitum og köldum vökva borgar sig að hella kalda vökvanum fyrst og svo þeim heita, t.d. kaffi með mjólk.
Að baka og elda í ofni:
- Best er að setja ofngrindina á réttan stað áður en kveikt er á ofninum; gott er að setja matinn í kaldan ofninn.
- Ferköntuð, djúp föt er auðveldara að eiga við en kringlótt, grunn form.
- Gott er að breiða klút yfir hrærivélina svo ekki slettist upp úr skálinni.
- Grillvettlingar eru öruggari en pottaleppar.
- Hægt er að fá ódýrar klukkur sem stilltar eru til að segja til um hvenær kakan er bökuð eða maturinn eldaður.
- Til eru áhöld til að skilja egg.
- Mældu lengd vísifingurs eða lengdina frá útréttum þumli til útrétts litla fingurs. Þá hefur þú alltaf málband við höndina.
Að steikja:
Panna með hárri brún og loki er þægileg að steikja á. Það má líka steikja í potti. Gott getur verið að raða á pönnuna eftir klukkukerfi (kl.12, 3, 6 og 9).
Steikarspaði eða klemmuspaði eru hentug tæki til að snúa matnum og taka hann af pönnunni.
Hægt er að setja tannstöngla í matinn og taka þá úr þegar matnum er snúið. Þá gleymist ekki að snúa neinum bitanna.
Þegar egg eru spæld er gott að nota steikarhring. Eggið er brotið í bolla og síðan hellt í hringinn.
Hægt er að nota handfangið á hringnum til að halda við þegar eggið er tekið af pönunni með spaða.
Að elda í potti:
- Þungir pottar með þykkum botni eru stöðugri á eldavélarhellu. Setjið pottinn á kalda eldavélarplötu svo hægt sé að finna hvort hann sitji rétt á plötunni og þeki hana alla.
- Notið frekar of stóra potta en of litla svo auðveldara sé að hræra án þess að sullist úr þeim.
Að mæla:
- Hægt er að fá eldhúsvogir með skýrum stöfum, einnig talandi vogir.
- Gott er að eiga bæði desilítramál og ½ dl-mál því stundum er erfitt að lesa af mæliglasinu.
- Hægt er að nota fingurna sem viðmið þegar mælt er af smjörstykki.
Að matast:
- Ljós matur sést betur á dökkum diski og dökkur matur á ljósum. Gott getur verið að koma sér upp kerfi við að raða á diskinn, t.d. má nota klukkuaðferðina (kl.12, 3, 6 og 9), áttirnar hægri eða vinstri, að og frá o.s.frv.
- Hnífapör og glös er betra að hafa alltaf á sama stað við diskinn.
- Hægt er að setja eitt horn servíettu undir diskinn svo ekki fari neitt niður.
Ýmis nytsamleg ráð:
- Gott er að blanda grænmetissalat í plastpoka.
- Þægilegt er að hræra egg í hristiglasi.
- Best er að nota dökkt skurðarbretti til að skera ljósan mat, t.d. fisk og ljóst skurðarbretti fyrir dökkan mat, t.d. kjöt.
- Þegar ísmolar eru losaðir úr ísmolaboxi er gott að hafa boxið í plastpoka svo molarnir fari ekki á flakk á borðinu.
- Bökunarpappír situr kyrr á bökunarplötu ef örlitlu vatni er úðað á plötuna fyrst.
- Gott er að merkja hitastillinn á eldavélinni með upphleyptum merkjum sem hægt er að þreifa á.
- Ef steikt er í brauðmylsnu eða hveiti er gott að hrista kryddið saman við í plastpoka.
- Auðveldara er að sjá diskinn ef hann er í öðrum lit en dúkurinn/borðið.
- Lituð glös sjást betur en glær.