Námskeið um leiðsöguhunda verður haldið dagana 7. til 10. nóvember frá klukkan 10:00 – 15:00 alla dagana.

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa áhuga á að sækja um leiðsöguhund í nánustu framtíð og er forsenda þess að eiga inni virka umsókn um leiðsöguhund. Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt þar sem þátttakendum er boðið upp á að vinna með leiðsöguhundi undir handleiðslu fagfólks.

Leiðbeinandi er Björk Arnardóttir, hundaþjálfari.

Nánari upplýsingar veitir Björk Arnardóttir; bjork.arnardottir@midstod.is .

Skráning fer fram fyrir 1. nóvember hjá Sjónstöðinni í síma 5455800 eða með tölvupósti á midstod@midstod.is .