Góð ráð

útfæra skemmtilegra . ekki í belg og biðu

  • Blindir og sjónskertir einstaklingar eru eins misjafnir og þeir eru margir. Flestir vita sjálfir hvaða aðstoð hentar þeim, hikaðu ekki við að spyrja.
  • Gerðu vart við þig, kynntu þig með nafni, sérstaklega þegar þið eruð að kynnast.
  • Bjóddu fram aðstoð þína. Veittu aðstoð sé hennar óskað. Berðu virðingu fyrir því sé hún afþökkuð.
  • Ekki nota orð eins og „hér“ og „þar“. Gefðu góðar skýringar eins og „kaffið er hægra megin við þig á borðinu“.
  • Láttu vita þegar þú gengur í burtu svo viðkomandi átti sig á því og haldi ekki áfram að tala við þig eftir að þú ert farin/n.
  • Þegar komið er í fjölmenni er gott að segja frá því hvaða fólk er viðstatt og hvernig aðstæður eru.
  • Ekki nota líkamstjáningu í samskiptum, svaraðu með orðum og útskýrðu hvað þú ert að gera.
  • Ávarpaðu viðkomandi einstakling með nafni í fjölmenni svo hann/ hún átti sig á því að verið er að tala við sig. Einnig er ágætt að snerta öxl þess sem talað er við svo viðkomandi viti að verið er að ræða við hann/hana.
  • Forðist að búa til hindranir með því að setja hluti í gangvegi t.d. stóla á miðjan gang, tösku í gangveg o.s.frv.
  • Það er allt í lagi að nota orð eins og „sjáðu“. Blindir og sjónskertir nota þau líka.
  • Spurðu hvort viðkomandi vilji halda í þig. Bjóddu honum/henni að grípa um handlegg þinn; best er að halda rétt ofan við olnboga. Gakktu hálfu skrefi á undan þeim sem er leiddur.

Texti og mynd

Sjónstöð vinnur með einstaklingum sem þurfa aðstoð vegna sjónskerðingar af einhverjum ástæðum