Eldri borgarar

Vinnur þú með eldri borgara? Sjónstöðin veitir ráðgjöf til aðstandanda og starfsfólks félagsþjónustu og stofnana t.d dvalarheimila og hjúkrunarheimila. Öll ráðgjöf er einstaklingsmiðuð og í samráði við einstaklinginn. Ráðgjafar frá Sjónstöðinni geta heimsótt heimili og stofnanir sé þess óskað. Lagt er mat á aðgengi og komið með tillögur að úrbótum sem miðar að því að auka sjálfstæði í athöfnum daglegs lífs. Veitt er ráðgjöf um samþætta sjón- og heyrnarskerðingu og gott samstarfi er við HTÍ og SHS, félagsþjónustu og hagsmunasamtök eins og Blindrafélagið.

Öllum blindum og sjónskertum eldri borgurum stendur til boða mat, kennsla og úthlutun á hjálpartækjum svo sem tölvutengdum tækjum og forritum, afþreyingarefni á punktaletri, gleraugum, stækkunarglerjum, hljóðspilara og hvítum stöfum. Viltu vita meira ….

Þjónustustjóri

Texti og mynd

Sjónstöð vinnur með einstaklingum sem þurfa aðstoð vegna sjónskerðingar af einhverjum ástæðum