Bæklingar á heilsugæslustöðvar í tilefni af sjónverndardegi

Í tilefni af alþjóðlegum sjónverndardegi, 13. október, viljum við á Þjónustu- og þekkingarmiðstöð benda á nauðsyn þess að fara reglulega til augnlæknis og í augnskoðun. Margir augnsjúkdómar, sérstaklega hjá eldra fólki, geta ágerst hratt og án einkenna og því er nauðsynlegt að fara í reglulegt eftirlit og skoðun. 

Undanfarna daga hafa bæklingar verið sendir á heilsugæslustöðvar landsins en í þeim er fjallað um helstu augnsjúkdóma og augnvernd auk þess sem starfsfólk er hvatt til að minna sjúklinga á að hitta augnlækni reglulega. 

Hér fyrir neðan má sjá bæklinga um sjónvernd og augnsjúkdóma. 

Hlúðu vel að sjóninni – Nokkur góð ráð um hvernig er best að hlúa að sjóninni 

Sjáðu til – Bæklingur um ýmislegt varðandi góða lýsingu 

Allt mögulegt – Bæklingur um sjónmissi

Bæklingur um Þjónustu- og þekkingarmiðstöð 

Gláka

Sykursýki og augnsjúkdómar

Ský á augasteini

Retinitis Pigmentosa