Sjónstöðin vinnur að innleiðingu Positive Looking, sem á íslensku gæti útlagst sem „jákvæð sjónörvun“ og á uppruna sinn hjá breska frumkvöðla­fyrir­tækinu Positive Eye Ltd.  Positive Looking er heildstæð hugmyndafræði um hvernig við getum á skilvirkan og hagnýtan hátt gert stöðumat á grunn­þáttum sjónar hjá börnum eða einstaklingum sem ekki geta tjáð sig á hefðbundin hátt. Samtímis er Postive Looking verkfærakista eða -safn sem auðveldar samskipti til þjónustuaðila svo sem skóla um hvernig ganga eigi fram varðandi markvissa íhlutun. Við innleiðingu Positive Looking á Sjónstöð var m.a. ákveðið að setja saman sjónörvunarpakka fyrir foreldra sem saman­stendur af örfáum sjónörvandi hlutum svo sem hanska, ljósastaf og litlu pallíettuveski til að geyma hlutina í. Ákveðið sjónáreiti er líka fólgið í pallíettunum. Kiwanisklúbburinn Hraunborg í Hafnarfirði gerðist styrktaraðili að pakkanum og á meðfylgjandi mynd má sjá Estellu Björnsson, fagstjóra í sjónfræði, taka við 200.000 kr. gjafabréfi úr hendi Haraldar Jónsson, formanns styrktarnefndar. Við kunnum Kiwanis miklar þakkir fyrir stuðninginn.

Hlutir úr sjönörvunarpakka
Haraldur afhendir Estellu gjafabréf