Þann 4. janúar 1809 fæddist Louis Braille í smábænum Coupvray í Frakklandi, um 40 km austur af París. Þegar Louis var þriggja ára missti hann sjón á öðru auganu þegar alur í aktygjasmiðju föður hans rakst í það. Sýking í skaddaða auganu barst yfir í hitt augað og hann missti að lokum sjón á því líka. Þrátt fyrir takmarkaða námsmöguleika fyrir blinda reyndist Louis vera prýðis námsmaður og 10 ára gamall hlaut hann styrk til náms við Konunglega skólann fyrir blind ungmenni (Institution Royale des Jeunes Aveugles).

Árið 1822 heimsótti Charles Barbier de la Serre, franskur áhugamaður um skriftarkerfi og fyrrum hermaður, skólann og kynnti nemendur fyrir punktaleturskerfi sem hann hafði skapað og birt í bók sinni Essai sur divers procédés d’expéditive française árið 1815. Þetta kerfi þróaði Louis Braille áfram og kynnti samnemendum sínum endurbætta og fjölhæfari útgáfu þess árið 1824. Þetta letur heitir á mörgum tungumálum eftir höfundinum (braille) og er notað um allan heim í dag, en í mismunandi útgáfum.

Þann 7. júní 2011 var punktaletur fest í lög sem íslenskt ritmál.

Árið 2018 samþykkti aðalþing Sameinuðu þjóðanna að festa í sessi alþjóðlegan dag punktaletursins þann 4. janúar ár hvert.

íslenska punktaletursstafrófið
Íslenska punktaletursstafrófið