Þjónustu- og þekkingarmiðstöð
fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.
Sjónstöðin, í samstarfi við Stuðningur til sjálfstæðis, sem er sjóður á vegum Blindrafélagsins og Blindravinafélagsins, býður á haustmánuðum upp á nám í kennslu í áttun og umferli. Nánar hér
Algeng atriði
Endurgreiðslur gleraugna
Til að sækja um endurgreiðslu vegna gleraugna þarf að fylla út eyðublað á vefnum. Fylgja þarf afrit af augnvottorði og sundurliðaða kvittun frá gleraugnaverslun.
Bæklingar
Þjónusta
Markmið Sjónstöðvarinnar er að auka möguleika þeirra sem eru blindir eða sjónskertir til virkni og þátttöku á öllum sviðum samfélagsins til jafns við aðra.
Samþætt sjón- og heyrnarskerðing
Umferli
Heilatengd sjónskerðing - CVI
CVI er sjónskerðing sem orsakast af skemmdum á sjónbraut og/eða sjónúrvinnslustöðvum í heilanum. Í flestum tilvikum gera börn með CVI sér ekki grein fyrir að sjónupplifun þeirra geti verið frábrugðin sjónupplifun annarra þar sem þau þekkja ekki annað.
nýjustu fréttir
Ný reglugerð um gleraugnaendurgreiðslur
Eins og kom fram í fjölmiðlum hefur Félagsmálaráðuneytið kynnt nýja reglugerð sem taka á gildi 1. júní næstkomandi. Samkvæmt nýju reglugerðinni...
Dagur leiðsöguhunda
Alþjóðlegur dagur leiðsöguhunda er haldinn hátíðlegur um allan heim í dag 28. apríl. Á síðastliðnum árum hefur leiðsöguhundum fjölgað jafnt og þétt...
Lokað mánudaginn 19. apríl
Miðstöðin verður lokuð mánudaginn 19. apríl en síminn opinn
Ráðleggingar vegna Corona-vírussins
Miðstöðin hefur tekið saman gagnlegar upplýsingar um Corona-vírusinn
Ferðasamningur Blindrafélagsins og Kópavogsbæjar
Þann 14. mars var undirritaður þjónustusamningur um að Blindrafélagið taki að sér að reka ferðaþjónustu fyrir lögblinda íbúa Kópavogsbæjar
áhugavert efni
No Results Found
The page you requested could not be found. Try refining your search, or use the navigation above to locate the post.
viðburðir
algengar spurningar
Ég sótti um endurgreiðslu á gleraugum en get ekki séð að greiðslan hafi borist
Allar gleraugnaendurgreiðslur koma frá Fjársýslu ríkisins og eru merktar „Ríkissjóður.“
Get ég sótt um hjálpartæki fyrir mig eða ættingja?
Einungis notendur Miðstöðvarinnar geta fengið úthlutað hjálpartækjum. Ekki er hægt að kaupa hjálpartæki hjá Miðstöðinni.
Geta fullorðnir fengið endurgreiðslu vegna gleraugnakaupa?
Fullorðnir eiga frá 18 ára aldri rétt á endurgreiðslum vegna eftirfarandi:
- Eru augasteinalausir (aphaki)
- Þurfa á prismagleraugum að halda vegna tvísýni
- Eru hánærsýnir (myopia gravis) ≥12,00
- Eru háfjarsýnir (microphathalmia) ≥10,00
- Eru með lausa augasteina (luxatio lentis)
- Þurfa að breyta gleraugnastyrk umtalsvert, að mati sérgreinalæknis í augnlækningum, vegna augnsjúkdóma eða skurðaðgerða, svo sem keiluglæru (keratoconus), eftir hornhimnuígræðslu eða nethimnulossaðgerð.
Hvað á að gera við hjálpartæki ef þau eru ekki lengur í notkun?
Miðstöðin lánar öll hjálpartæki og óskar því eftir að þeim sé skilað ef þau nýtast ekki lengur.
um stofnunina
Markmið Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu er að auka möguleika þeirra sem eru blindir, sjónskertir eða með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu til virkni og þátttöku á öllum sviðum samfélagsins til jafns við aðra, með áherslu á stuðning til náms, sjálfstæðs heimilishalds, virkra tómstunda og atvinnuþátttöku.