Fyrir notendur
Markmið Sjónstöðvarinnar eru að auka möguleika þeirra sem eru blindir, sjónskertir eða með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu til virkni og þáttöku á öllum sviðum samfélagsins til jafns við aðra, með áherslu á stuðning til náms, sjálfstæðs heimilishalds, virkra tómstunda og atvinnuþátttöku.
Til að komast að sem notandi þjónustu hjá Sjónstöðinni þarf augnlæknir að vísa til okkar. Þú átt rétt á þjónustu ef sjónin þín er minni en 30% á betra auga (með gleraugum) eða með skert sjónsvið innan við 20 gráður.
Þegar augnlæknir hefur sent tilvísun á Sjónstöð fyrir inntökuteymi yfir tilvísunina. Tilvísunarteymið fer yfir tilvísunina og samþykkir þig í þjónustu. Þér er boðinn tími hjá sjónfræðing til að fara yfir þín mál.
Í fyrstu komu er farið yfir helstu hjálpartæki sem nýtast þér vegna sjónskerðingarinnar. Ef þarf að fara yfir félagsleg réttindi þá er þér gefin tími hjá félagsráðgjafa. Í boði er frekari þjónusta ef þurfa þykir svo sem kennsla á ákveðin hjálpartæki. Mikilvægt er að einstaklingur haldi áfram í þjónustu hjá sínum augnlækni þar sem hlutverk Sjónstöðvarinnar er hæfing og endurhæfing þeirra sem eru blindir eða sjónskertir. Öll læknismeðferð skal fara fram hjá meðhöndlandi augnlækni.
Dagur hvíta stafsins 15. október.
15. október er dagur hvíta stafsins; baráttu- og vitundardagur blinds og sjónskerts fólks. Dagurinn er alþjóðlegur og er tilgangurinn með honum að vekja athygli á málefnum blindra og sjónskertra einstaklinga og þá sérstaklega aðgengimálum og þeim aðgegnishindrunum sem...
Góð umgengni og tillitssemi við alla
Tveir starfsmenn Sjónstöðvar rötuðu í frétt á Vísir.is um helgina, í tengslum við samstarfsverkefni Sjónstöðvar, Hopp Reykjavikur og leiðsöguhundadeildar Blindrafélagsins um vitundarvakningu varðandi umgengni á gangstígum og gangstéttum. Það er því tilvalið að minna...
Fyrirlestur: Making it Easier to See – An introduction to Cerebral Visual Impairment
Fyrirlestur fyrir lækna og heilbrigðisstarfsfólk sem vinnur með börnum með heilatengda sjónskerðingu. Fyrirlesari er Rachel Pilling, ráðgefandi augnlæknir við Bradford kennslusjúkrahús (NHS Trust) og prófessor við Háskólann í Bradford, UK Fimmtudaginn 26. október 2023...