Frestur til að skrá þátttöku sína á námskeiðið Samskipti foreldra og blindra og sjónskertra barna hefur verið framlengdur til 30. desember 2009.
Á námskeiðinu mun Hugó Þórisson sálfræðingur m.a. fjalla um:
- að eignast blint eða sjónskert barn
- að eignast blint eða sjónskert systkin
- sjálfsmynd barnanna og aðferðir til að styrkja sjálfstæði
Hægt er að skrá þáttöku á heimasíðu Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga eða í síma 545- 5800.