Þann 19. febrúar næstkomandi mun Þjónustu- og þekkingarmiðstöðin, í samstarfi við Blindrafélagið, halda námskeið, fyrir notendur Miðstöðvarinnar, sem ber yfirskriftina: Heilsa, stíll og útlit fyrir karla. Leiðbeinandi á námskeiðinu er Heiðar Jónsson snyrtir.
Á námskeiðinu fjallar Heiðar af sinni alkunnu snilld og kímnigáfu um:
- sjálfstraust
- hreyfingar og líkamsstöðu
- ilm og hreinlæti
- fatastíl
- hirðingu fata og fylgihluta
- samskipti, daður og skemmtilegheit
Að auki tekur hann fyrir ýmsan fróðleik.
Námskeiðið verður haldið föstudaginn 19. febrúar 2010 frá kl. 14:00 til 15:00 í húsnæði Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga á 5. hæð að Hamrahlíð 17.
Seinni hluti námskeiðsins verður haldinn 22. febrúar frá 10:30 til 12:00 í versluninni Debenhams í Smáralind. Þar munu þátttakendur hitta stílista sem veitir góð ráð um tísku og fataval.
Verð: 750 kr. fyrir félagsmenn í Blindrafélaginu en 1500 fyrir utanfélagsmenn.
Pláss er fyrir 15 þátttakendur og því um að gera að skrá sig strax. Hægt er að skrá sig á heimasíðu Miðstöðvarinnar eða í síma 545 5800. Skráningu lýkur 5. febrúar 2010.