Hvað gera leiðsöguhundar?
Leiðsöguhundar aðstoða blinda og sjónskerta einstaklinga við að komast leiðar sinnar á öruggan og sjálfstæðan hátt.
- forðast hindranir á gönguleið, bæði á jörðu og í höfuðhæð (t.d. trjágreinar og skilti).
- hindra að notandinn hrasi um vegkanta eða tröppur.
- stöðva við öll gatnamót.
- fara yfir umferðargötur á öruggan hátt með því að forðast að ganga í veg fyrir bíla og önnur farartæki.
- fylgja fjölda fyrirmæla sem notandinn gefur.