Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga óskar eftir uppeldisfjölskyldum fyrir leiðsöguhunda.

Miðstöðin sér um þjálfun leiðsöguhunda fyrir blinda og sjónskerta. Hjá Miðstöðinni starfar þjálfari sem sér um þjálfun hundanna og eftirlit með þeim. 
Hlutverk uppeldisfjölskyldunnar er mjög mikilvægt.  Það að verðandi leiðsöguhundur fái að alast upp að hluta til á venjulegu heimili er stór hluti af undirbúningi og þjálfun leiðsöguhunda.

Skilyrðin fyrir því að hundur fái að vinna sem leiðsöguhundur eru ótalmörg en mikilvægast af öllu er að hundurinn sé áreiðanlegur, öruggur í umhverfi og öruggur með ókunnu fólki. Það er mikilvægt fyrir hvolpinn að fá að alast upp á „heimili“ og að hann fái að lifa hversdagslífi og vera hluti að fjölskylduheildinni. Allir hvolpar þurfa að alast upp við ást, umhyggju, virðingu og aga.
Hundaþjálfari Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga mun fylgjast með uppeldi hvolpana og gefa góð ráð varðandi uppeldi. Þjálfari frá Miðstöðinni mun hitta uppeldisfjölskyldu einu sinni í mánuði þar sem farið verður yfir hvernig hundarnir eru að þroskast, farið í göngu/umhverfisþjálfun og grunnhlýðni. Miðstöðin borgar fóður og dýralæknakostnað fyrir hvolpana. Hvolpinum fylgir eigið bæli,búr og matardallar.

Reikna má með að hver hvolpur dvelji hjá fósturfjölskyldu í um það bil eitt ár, eða þar til þjálfarinn telur hann tilbúinn til þjálfunar.

Allar nánari upplýsingar veitir Drífa Gestsdóttir þjálfari leiðsöguhunda
sími 860-9499, netfang: drifa@midstod.is