Þjálfunin er ætluð sjónskertum og blindum einstaklingum sem vilja bæta líkamlegan styrk og auka úthald.

Í upphafi er staða hvers þátttakanda metin og einstaklingsmiðuð markmið sett. Þjálfunaráætlun er gerð með þau markmið í huga. Kennt er í hóptímum sem byggjast á fjölbreyttum æfingum þar sem unnið er með:

  • grunnþol hvers og eins
  • styrk
  • liðleika
  • jafnvægi
  • líkamsstöðu og líkamsbeitingu
  • spennulosun

Tímasetning: 22. maí – 29. júní , þriðjudagar og föstudagar kl. 8:15 – 9:15, samtals 12 tímar

Sjúkraþjálfari: Ásdís Árnadóttir

Staðsetning: Afl sjúkraþjálfun, Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðin)

Hámarksfjöldi þátttakenda er 5. Hægt er að bæta við fleiri námskeiðum ef eftirspurn verður mikil kl. 9:15 – 10:15 sömu vikudaga

Lágmarksaldur: 18 ára

Námskeiðsgjald: Námskeiðið er kostað með greiðsluþátttöku frá Sjúkratryggingum Íslands og af Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga

Umsóknarfrestur er til 9. maí

Skráning fer fram hjá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð í síma 545 5800