Námskeiðið er ætlað sjónskertum og blindum einstaklingum sem vilja bæta minnið sitt. Minnistækni býður okkur upp á að þjálfa minnið þannig að við þurfum einungis að lesa einu sinni yfir upplýsingarnar en ekki oft.
Skráning fer fram í síma 545 5800.
Námskeiðið er haldið 3. og 7. september næstkomandi.
Við eigum það til að falla í þá gryfju að til að muna þá lesum við efnið yfir aftur og aftur. Það er lúxus sem blindir og sjónskertir einstaklingar geta ekki leyft sér þar sem þeir eru oft á tíðum hægari í lestri en þeir sem hafa fulla sjón.
Hvernig nýtist minnistæki?

  • Minnistækni byggir á ævafornum aðferðum sem hafa staðist tímans tönn. Kenndar verða aðferðir sem m.a. hjálpa við að:
  • Takast á við hversdagsgleymsku (hvar setti ég lyklana, gleraugun, hvenær á ég tíma hjá lækninum o.s.frv.)
  • Muna mikið magn upplýsinga
  • Muna nöfn
  • Muna ártöl og aðrar tölur
  • Muna dagsetningar og atburði
  • Bæta skipulagningu og tímastjórnun

Með því að beita minnistækni nýtum við tíma okkar betur, erum skipulagðari og sjálfsöryggi eykst.

Upplýsingar um námskeið


Kennari:
Kolbeinn Sigurjónsson og ráðgjafar Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar.

Verð:
3000 kr.

Kennslutími:
3. september 2012 kl. 14-16 og 7. september 2012 kl. 14-16.

Kennslustaður:
Salur Blindrafélagsins á 2. hæð í Hamrahlíð 17.

Fyrir:
Sjónskerta og blinda einstaklinga, 60 ára og eldri, sem vilja bæta minnið sitt.

Skráning hefst:
4. júlí 2012

Skráningu lýkur:
22. ágúst 2012