Líkt og undanfarin misseri þá stendur blindum og sjónskertum til boða regluleg hópþjálfun undir handleiðslu sjúkraþjálfara. Þjálfunin fer fram hjá Afli sjúkraþjálfun og er í samstarfi við Þjónustu- og þekkingamiðstöð.

Í þjálfuninni er leitast við að bæta líkamlegan styrk og auka úthald þátttakenda. Þátttakendur fylgja áætlun sem sniðin er að þörfum hvers og eins.

Í þjálfuninni er miðað að því að:

  • bæta grunnþol.
  • auka styrk.
  • auka liðleika.
  • bæta jafnvægi.
  • bæta líkamsstöðu og líkamsbeitingu.
  • kenna spennulosun.

 

Tímasetning:

Hópur 1: 23. september-16. desember, mánudagar og miðvikudagar kl. 11:15 – 12:15.

Hópur 2: 24. september-17. desember, þriðjudagar og föstudagar kl. 8:15 – 9:15.

Sjúkraþjálfari: Ásdís Árnadóttir.

Staðsetning: Afl sjúkraþjálfun, Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðin).

Hámarksfjöldi í hvorn hóp er 5.

Lágmarksaldur: 18 ára.

Námskeiðsgjald: Sjúkratryggingar Íslands greiða hluta af gjaldi hvers þátttakanda, en þátttakendur greiða sjálfir það sem á vantar. Upplýsingar um greiðslu einstaklinga má fá  með því að senda tölvupóst til afl@aflid.is  eða í síma 511-4111.

Skráning er til 17.september.

Skráning fer fram hjá Afli sjúkraþjálfun í síma 511 4111 eða afl@aflid.is.