Fimmtudaginn 21. nóvember kl. 14:15 – 15:45 ætlar Þjónustu-
og
þekkingarmiðstöðin að halda opið hús fyrir kennara og starfsmenn sem
vinna með blindum, sjónskertum og daufblindum nemendum. Þetta er frábært
tækifæri til að hitta okkur og aðra starfsfélaga sem fást við sömu
viðfangsefni, svo sem aðlögun námsefnis, aðgengi í skólanum o.s.frv.

Halldór Sævar, ráðgjafi á Miðstöðinni, mun segja frá
reynslu sinni af því hvernig það var að vera sjónskertur nemandi í
grunnskóla. Síðan gefst tækifæri til að ræða málin og skipta sér upp í
hópa eftir áhugasviði.

Miðstöðin sér um að það verði heitt á könnunni og gott að maula með.

Við hvetjum þig til að mæta og taka þátt í skemmtilegu samstarfi.

Með kærri kveðju,

Brynja, Elfa, Halldóra og Rannveig, sérkennsluráðgjafar Miðstöðvarinnar