Fyrstu vikuna í mars býðst unglingum (8.-10. bekkur) að koma á Miðstöðina og taka áhugasviðspróf hjá námsráðgjafa okkar.

Í vikunni á eftir, miðvikudaginn, 12. mars kl. 14-16, hefst svo hið eiginlega námskeið. Námskeiðið verður vikulega  á miðvikudögum og verða þetta alls 7 skipti.

Námskeiðið byggist á því að unglingarnir kanni áhugasvið sitt og máti sig inn í nám og vinnu sem gæti hentað þeim. Námskeiðið fer fram með umræðum og heimsókn á hina ýmsu vinnustaði.

Við hvetjum þig til að mæta og taka þátt í skemmtilegu námskeiði.

Bryndís Sveinsdóttir sálfræðingur og Halldór Sævar Guðbergsson, atvinnu- og virkniráðgjafi, munu halda utan um námskeiðið.

Lokadagur skráningar er fimmtudaginn 27. febrúar

Skráning á námskeiðið er á netfangið: bryndis@midstod.is

Með kærri kveðju,

Bryndís og Halldór ráðgjafar Miðstöðvarinnar