Þriðjudaginn 6. maí hefst námskeiðið „Aðlögun að sjónmissi“ fyrir notendur Miðstöðvarinnar. Hér gefst fólki á aldrinum 30 til 67 ára tækifæri til að koma saman, heyra frá og miðla reynslu sinni til annarra  sem eru að aðlagast sjónmissi og fræðast um hvaða þjónusta er í boði fyrir blint og sjónskert fólk hér á landi. Gert er ráð fyrir að hópurinn hittist á þriðjudögum kl 14.00 til kl 16.00 í húsnæði Miðstöðvarinnar, alls fimm sinnum. 

Bryndís Sveinsdóttir sálfræðingur og Halldór Sævar Guðbergsson starfs- og endurhæfingarráðgjafi halda utan um námskeiðið.

Hámarksfjöldi þátttakenda er átta manns og er ekkert þátttökugjald.

Skráning fer fram í afgreiðslu Miðstöðvarinnar og lýkur henni miðvikudaginn 30. apríl.

Bryndís og Halldór veita nánari upplýsingar í síma 545 5800 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin halldor@midstod.is og bryndis@midstod.is.