Alþjóðleg ráðstefna um öldrun á vegum SensAge var haldin í York í Bretlandi 23. júní 2014.
Meginþema ráðstefnunnar var virk félagsleg þátttaka aldraðra með skynfæraskerðingu.
Markmiðið með þessari ráðstefnu var að hafa áhrif á stefnumörkun varðandi bætta þjónustu við aldraða og auka samskipti sérfræðinga og starfsfólks á þessu sviði. Áherslan var lögð á hvernig auka megi samfélagslega þátttöku og sjálfstæði aldraðra í samfélaginu.
Efni sem voru til umfjöllunar á ráðstefnunni:
- Skynfæraskerðing
- Stefnumörkun
- Nýungar og þróun í þjónustu við aldraða
- Sjálfstæði í athöfnum daglegs lífs
- Kostir aukinnar samvinnu og samskipta þeirra sem vinna með öldruðum.
Niðurstöður ráðstefnunnar má finna á heimasíðu Sensage