Miðvikudaginn 29. október kl. 14:15 – 15:45 hefst námskeið fyrir krakka á aldrinum 10-12 ára á Þjónustu- og þekkingarmiðstöð. Námskeiðið verður í þrjú skipti vikulega á miðvikudögum.
Námskeiðið byggist á því að krakkarnir koma og ræða í hóp ýmsa þætti er varða sjónskerðingu. Hvaða misskilningur getur orðið í samskiptum vegna sjónskerðingar? Hvaða samskiptavandamál koma upp innan vinahópsins og við kennara? Jafnframt munu þeir læra að segja frá sjónskerðingu sinni á stuttan og fræðilegan hátt þannig að þeir geti svarað spurningunni „Hvernig sérðu?“.
Bryndís Sveinsdóttir sálfræðingur og Elfa Hermannsdóttir sérkennsluráðgjafi munu halda utan um námskeiðið.
Skráning á námskeiðið er á netfangið: elfa@midstod.is
Við hvetjum þig til að mæta og taka þátt í skemmtilegu námskeiði.
Með kærri kveðju,
Bryndís og Elfa, ráðgjafar Miðstöðvarinnar