Líkt og undanfarin misseri þá stendur blindum og sjónskertum til boða regluleg hópþjálfun undir handleiðslu sjúkraþjálfara. Þjálfunin fer fram hjá Afli sjúkraþjálfun og er í samstarfi við Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga.

Í þjálfuninni er leitast við að bæta líkamlegan styrk og auka úthald þátttakenda. Þátttakendur fylgja áætlun sem sniðin er að þörfum hvers og eins.

Í þjálfuninni er miðað að því að:

•    bæta grunnþol.

•    auka styrk.

•    auka liðleika.

•    bæta jafnvægi.

•    bæta líkamsstöðu og líkamsbeitingu.

•    kenna spennulosun.

Þeir sem koma í fyrsta sinn þurfa að mæta í skoðunar- og viðtalstíma áður en þjálfun hefst. Þeir sem hafa verið áður í þessum hópum geta hafið þjálfun án viðtalstíma. Námskeiðin standa yfir í 16 vikur.

Tímasetning:
Hópur 1: 1.september – 18. desember, þriðjudagar og föstudagar kl. 8:00 – 9:00
Hópur 2: 1. september – 18. desember, þriðjudagar og föstudagar kl. 9:00 – 10:00.

Sjúkraþjálfari: Ásdís Árnadóttir.
Staðsetning: Afl sjúkraþjálfun, Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðin).

Hámarksfjöldi í hvern hóp er 5.

Lágmarksaldur: 18 ára.

Námskeiðsgjald: Sjúkratryggingar Íslands greiða hluta af gjaldi hvers þátttakanda, en þátttakendur greiða sjálfir 19.200 fyrir námskeiðið sem er 32 æfingatímar (hægt er að skipta greiðslum í 2-3 hluta). Nýjir þátttakendur greiða að auki fyrir einn skoðunartíma. Skráning er til 28. ágúst.

Skráning fer fram hjá Afli sjúkraþjálfun í síma 511 4111 eða afl@aflid.is.