Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda
einstaklinga býður aðstandendum fólks sem verður sjónskert eða blint á
efri árum, á námskeið. Um er að ræða tvö skipti þar sem bæði verður
fræðsla og umræður um eigin reynslu. Á námskeiðinu verður fræðsla um
sjónskerðingu, líðan, félagslega einangrun, athafnir daglegs lífs,
umferli og þjónustu innan og utan Miðstöðvarinnar. Hér gefst
aðstandendum einnig tækifæri til að hittast og ræða við aðra
aðstandendur um reynslu sína.

 

•    Námskeiðið verður þriðjudaginn 27.október og fimmtudaginn 29.október kl 16:30-19:00.

Bryndís Sveinsdóttir sálfræðingur og Steinunn Sævarsdóttir
félagsráðgjafi halda utan um námskeiðið. Hámarksfjöldi þátttakenda er 16
manns og er ekkert þátttökugjald. Þeir sem hafa áhuga á því að taka
þátt eru vinsamlegast beðnir að skrá sig í afgreiðslu Miðstöðvar í síma
545-5800 eða í gegnum netfangið midstod@midstod.is.

Nánari upplýsingar veita Bryndís og Steinunn í síma 545 5800 en einnig
er hægt að senda tölvupóst á netföngin bryndis@midstod.is og
steinunn@midstod.is.