Námskeið í líkamsþjálfun

Líkt og undanfarin misseri þá stendur blindum og sjónskertum til boða regluleg hópþjálfun undir handleiðslu sjúkraþjálfara. Þjálfunin fer fram hjá Afli sjúkraþjálfun og er í samstarfi við Þjónustu- og þekkingamiðstöð.

Í þjálfuninni er leitast við að bæta líkamlegan styrk og auka úthald þátttakenda.
Þátttakendur fylgja áætlun sem sniðin er að þörfum hvers og eins.

Í þjálfuninni er miðað að því að:
•    bæta grunnþol
•    auka styrk
•    auka liðleika
•    bæta jafnvægi
•    bæta líkamsstöðu og líkamsbeitingu
•    kenna spennulosun

Þeir sem koma í fyrsta sinn þurfa að mæta í skoðunar- og viðtalstíma áður en þjálfun hefst. Þeir sem hafa verið áður geta hafið þjálfun án viðtalstíma. Námskeiðin standa yfir í 15 vikur.

Tímasetning:
6.september – 16.desember, þriðjudagar og föstudagar kl. 9:00-10:00

Sjúkraþjálfari: Ásdís Árnadóttir

Staðsetning: Afl sjúkraþjálfun, Borgartúni 6 (Rúgbrauðsgerðin)
Hámarksfjöldi í hóp er 5.
Lágmarksaldur: 18 ára
Þátttakendur greiða 22.500 fyrir námskeiðið sem er 30 æfingatímar (Hægt er að skipta greiðslum í 2-3 hluta).

Skráning fer fram hjá Afli sjúkraþjálfun í síma 511 4111 eða afl@aflid.is