Aðlögun að sjónmissi – jafningjafræðsla

Veturinn 2017-2018 verður boðið upp á þrjú námskeið sem nefnast Aðlögun að sjónmissi fyrir notendur Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar í Hamrahlíð 17. Fyrsta námskeiðið hefst miðvikudaginn 13. september og er fyrir fólk á aldrinum 20-40 ára. Annað námskeiðið er áætlað í byrjun nóvember og er fyrir 40-67 ára og þriðja námskeiðið er áætlað í byrjun febrúar fyrir 60 ára og eldri.

Á námskeiðinu gefst fólki tækifæri til að koma saman, heyra frá og miðla reynslu sinni til annarra  sem eru að aðlagast sjónmissi og fræðast um hvaða þjónusta er í boði fyrir blint og sjónskert fólk hér á landi. Hóparnir munu hittast á miðvikudögum kl. 13.30 til kl. 16.00 í húsnæði Miðstöðvarinnar, alls fimm sinnum.

Halldór Sævar Guðbergsson fagstjóri atvinnu- og virkni og Steinunn Sævarsdóttir félagsráðgjafi halda utan um námskeiðið. Hámarksfjöldi þátttakenda er átta manns og er ekkert þátttökugjald. Skráning fer fram í afgreiðslu Miðstöðvarinnar, í síma 545-5800 eða á netfanginu midstod@midstod.is og lýkur skráningu fyrir fyrsta námskeiðið föstudaginn 8. september. Seinni námskeiðin verða auglýst síðar. Halldór og Steinunn veita nánari upplýsingar í síma 545 5800 en einnig er hægt að senda tölvupóst á netföngin halldor.gudbergsson@midstod.is og steinunn.saevarsdottir@midstod.is.