Aldurstengd augnbotnahrörnun – Fræðslufundur

Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu boðar til fræðslufundar um aldurstengda augnbotnahrörnun (AMD) í samstarfi við
augndeild Landspítala Háskólasjúkrahús.

Fundurinn fer fram miðvikudaginn 16. maí kl. 16:30-18:00 á Hótel Reykjavík Natura.

Markmið fundarins er að fræða notendur, fagfólk og aðstandendur um aldurstengda augnbotnahrörnun, meðferðir og þau hjálpartæki sem geta nýst.

Aldurstengd augnbotnahrörnun er algengasta orsök sjónskerðingar hjá fólki yfir sextugu og er einstaklingum með AMD sérstaklega bent á að sækja fundinn.

Fundurinn er öllum opin og þátttaka er ókeypis.

Dagskrá:
•    Umfjöllun um Þjónustu- og þekkingarmiðstöð. Sigríður Másdóttir augnlæknir, yfirlæknir Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar.
•    Aldurstengd augnbotnahrörnun, meðferð og eftirfylgni. Óskar Jónsson augnlæknir- Landspítala Háskólasjúkrahúsi.
•    Einkenni aldurstengdrar augnbotnahrörnunar og sjónhjálpartæki.
Estella D. Björnsson sjónfræðingur Þjónustu- og þekkingarmiðstöð.
•    Ráðgjöf og hjálpartæki í daglegu lífi. Vala Jóna Garðarsdóttir ráðgjafi Þjónustu- og þekkingarmiðstöð.
•    Formaður AMD deildar Blindrafélagsins Sigurður G. Tómasson.
•    Lokaorð. Margrét María Sigurðardóttir forstjóri Þjónustu- og þekkingarmiðstöð.