Viltu vita meira um hvernig best er að aðstoða  blinda og sjónskerta?

 

Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu býður til fundar um fræðslu fyrir þá sem vilja auka þekkingu sína á þessu sviði

 

Miðstöðin tekur þátt í verkefni á vegum Evrópusambandsins um kennsluefni á netinu. Þátttakendur í verkefninu eru frá stofnunum í Portúgal, Spáni, Ítalíu, Þýskalandi, Búlgaríu og Frakklandi auk Íslands.

Efnið er ætlað þeim sem vinna með eða aðstoða blint og sjónskert fólk.  Fjallað verður um hvernig nálgast má hagnýtar upplýsingar með því að lesa og skoða efni þegar hverjum og einum hentar. Efnið er sérstaklega ætlað þeim sem vinna með öldruðu fólki, s.s. starfsfólki öldrunarstofnana, sjúkrahúsa eða heilsugæslu. Efnið getur líka gagnast aðstandendum blindra og sjónskertra.

Við á Miðstöðinni bjóðum ykkur að koma í heimsókn, fá kynningu á þessu aðgengilega efni, spjalla við ráðgjafa og skoða vinnustaðinn okkar.

 

Fundurinn verður haldinn að Hamrahlíð 17 í Reykjavík þann 11. júní kl. 15:00-16:00.

  

Við hlökkum til að sjá sem flesta og biðjum ykkur að skrá ykkur á netfangið midstod@midstod.is eða í síma 545-5800 eigi síðar en 31. maí.

Með bestu kveðjum frá starfsfólki Miðstöðvarinnar