Námskeið um leiðsöguhunda verður haldið hjá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu, Hamrahlíð 17, Reykjavík dagana 10. febrúar til 12. febrúar frá klukkan 10:00 – 15:00.

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa áhuga á að sækja um leiðsöguhund í nánustu framtíð. Námskeiðið er forsenda þess að eiga inni virka umsókn um leiðsöguhund. Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt þar sem þátttakendum er boðið upp á að  vinna með leiðsöguhundi undir handleiðslu fagfólks.

Leiðbeinendur eru Björk Arnardóttir, Vala Jóna Garðarsdóttir, Drífa Gestsdóttir og Carina Jönsson.

Nánari upplýsingar veita Björk Arnardóttir hundaþjálfari, bjork.arnardottir@midstod.is og Vala Jóna Garðarsdóttir fagstjóri, vala.garðarsdottir@midstod.is

Skráning fer fram fyrir 6. febrúar hjá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð í síma 5455800