Málverk eftir Rut Rebekku

Þjónustu- og þekkingarmiðstöð

fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu.

Málverkið á forsíðunni er eftir Rut Rebekku. Með því að smella á myndina má sjá fleiri myndir eftir hana. 

Algeng atriði

Endurgreiðslur gleraugna

Til að sækja um endurgreiðslu vegna gleraugna þarf að fylla út eyðublað á vefnum. Fylgja þarf afrit af augnvottorði og sundurliðaða kvittun frá gleraugnaverslun.

Bæklingar

Hér má finna allskyns lesefni tengt sjónskerðingu og daglegt líf þeirra sem glíma við hana. Flesta þeirra má lesa beint af vefnum eða hlaða niður sem .pdf-skjali.

Þjónusta

Markmið Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvarinnar er að auka möguleika þeirra sem eru blindir eða sjónskertir til virkni og þátttöku á öllum sviðum samfélagsins til jafns við aðra.

Samþætt sjón- og heyrnarskerðing

Áður kölluð daufblinda, er sértæk fötlun þegar skerðingin er til staðar í þeim mæli að hún gerir skertu skynfærunum erfitt fyrir að bæta upp fyrir hvort annað.

Umferli

Umferli snýst um að læra aðferðir og leiðir til að komast frá einum stað til annars innan dyra sem utan. Umferliskennsla nýtist þeim eru með litla eða enga sjón eða þeim sem eru með sjónúrvinnsluerfiðleika.

Náms- og starfsráðgjöf

Á Miðstöðinni starfar náms- og starfsráðgjafi sem meðal annars veitir notendum ráðgjöf um náms- og starfsval, sí- og endurmenntun.

nýjustu fréttir

Alþjóðadagur punktaleturs

Í dag, 4. janúar er alþjóðlegur dagur punktaleturs. Þann 4. janúar 1809 fæddist Louis Braille í smábænum Coupvray í Frakklandi. Þegar hann var...

Jólakveðja

Sjónstöðin, þjónustu- og þekkingarmiðstöð óskar þér og þínum gleðilegra jóla og farældar á árinu 2023.

Úthlutun úr Þórsteinssjóði

Fjórir námsstyrkir hafa verið veittir úr Þórsteinssjóði til blindra og sjónskertra stúdenta við Háskóla Íslands. Þetta er í ellefta skipti sem...

Kynning á leiðsagnarforritum

Sjónstöðin verður með kynningu á nokkrum leiðsagnar smáforritum sem geta komið að góðu gagni fyrir þá sem nýta sér snjalltæki í umferli eða hafa...

áhugavert efni

Að lifa hversdagslífinu án sjónar

Blind og sjónskert börn og þeir sem missa sjón síðar meir á lífsleiðinni þurfa oft þjálfun í að tileinka sér athafnir daglegs lífs. Þó sjáandi fólk spái lítið í hversdagslegum verkum á borð við að þvo þvott, sópa gólf, hella í glas og elda mat getur verið mikil vinna...

Ábyrgð og sjálfstæði blindra og sjónskertra barna

Nauðsynlegt er að aðstandendur og þeir sem vinna með blindum og sjónskertum börnum leitist við að veita börnunum eins mikla þjálfun í að vera eins sjálfstæð og hægt er. Að taka ábyrgð er eitthvað sem öll börn þurfa að læra en flest þeirra gera það með því að sjá hvað...

Blindrabærinn Marburg

Í austanverðu Þýskalandi hefur hefur bær einn verið að þróa umhverfi og samfélag sem aðlagast að þörfum blindra og sjónskertra hraðar og betur en víðast hvar. Bærinn leggur metnað sinn í vera blindrabær – á þýsku Blindenstadt. Marburg er háskólabær í Þýskalandi, um...

Að mála sig án sjónar

Þó að sjón sé lítil eða engin er mikilvægt fyrir flesta að líta vel út og vera öruggir um útlit sitt. Einfaldast er að nota sjónina við hversdagslega hluti, á borð við að mála sig en þó er vel gerlegt að reiða sig á önnur skynfæri við það. Í þessari grein eru...

„Ætti ég að fá mér leiðsöguhund, eða ekki?“

Ertu að velta fyrir þér að sækja um leiðsöguhund? Ertu forvitin/nn að vita hvað hundurinn getur gert fyrir þig? Carmen hefur notað leiðsöguhund í 8 ár og fer yfir hvað hafa ber í huga til að hundur geti nýst sem best. Áður en Carmen fékk leiðsöguhund þekkti hún ekkert...

viðburðir

algengar spurningar

Ég sótti um endurgreiðslu á gleraugum en get ekki séð að greiðslan hafi borist

Allar gleraugnaendurgreiðslur koma frá Fjársýslu ríkisins og eru merktar „Ríkissjóður.“

Nánar um gleraugnaendurgreiðslur

Get ég sótt um hjálpartæki fyrir mig eða ættingja?

Einungis notendur Miðstöðvarinnar geta fengið úthlutað hjálpartækjum. Ekki er hægt að kaupa hjálpartæki hjá Miðstöðinni.

Reglugerð um úthlutun hjálpartækja á vegum Miðstöðvarinnar 

Geta fullorðnir fengið endurgreiðslu vegna gleraugnakaupa?

Fullorðnir eiga frá 18 ára aldri rétt á endurgreiðslum vegna eftirfarandi:

  • Eru augasteinalausir (aphaki)
  • Þurfa á prismagleraugum að halda vegna tvísýni
  • Eru hánærsýnir (myopia gravis) ≥12,00
  • Eru háfjarsýnir (microphathalmia) ≥10,00
  • Eru með lausa augasteina (luxatio lentis)
  • Þurfa að breyta gleraugnastyrk umtalsvert, að mati sérgreinalæknis í augnlækningum, vegna augnsjúkdóma eða skurðaðgerða, svo sem keiluglæru (keratoconus), eftir hornhimnuígræðslu eða nethimnulossaðgerð.

Nánar um gleraugnaendurgreiðslur

Hvað á að gera við hjálpartæki ef þau eru ekki lengur í notkun?

Miðstöðin lánar öll hjálpartæki og óskar því eftir að þeim sé skilað ef þau nýtast ekki lengur.

um stofnunina

Markmið Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og einstaklinga með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu er að auka möguleika þeirra sem eru blindir, sjónskertir eða með samþætta sjón- og heyrnarskerðingu til virkni og þátttöku á öllum sviðum samfélagsins til jafns við aðra, með áherslu á stuðning til náms, sjálfstæðs heimilishalds, virkra tómstunda og atvinnuþátttöku.